
Episode #81
Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin
Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur fengið sé að hluta til ósanngjörn. Bjarki er byrjaður á Control Resonant og segir frá fyrstu hughrifum sínum á leiknum eftir að hafa spilað fyrstu tvo klukkutímana. Daníel er í skýjunum - eða öllu heldur geimnum - eftir að hafa klárað Outer Wilds og aukapakkann. Nýlegar leikjafréttir eru einnig til umræðu. Má þar nefna nýjan heim í Minecraft, breytingar hjá Bungie, stöðuna hjá Microsoft og Halo svo eitthvað sé nefnt. Í lok þáttar fjöllum við um nýju Resident Evil bíómyndina en þeir Sveinn og Daníel mættu á sérstaka forsýningu í boði GameTíví.

