
Íþróttanæring með Nutreleat
22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur
Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi. Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann og starfsemi hans, og hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á næringartengdar áherslur í fræðilegu samhengi. Við skoðum einnig hvar þekkingu skortir enn í dag og hvað þarf að rannsaka betur þegar kemur að samspili heilaskaða og næringar. Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu: https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst! Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður. Vonum að þú njótir. -Nutreleat teymið


