
Til skjalanna
Dularfullt andlát við Draugatjörn
Símon Sverrisson ræðir við Ólaf Valdimar Ómarsson skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um dularfullt andlát Kristmanns Jónssonar árið 1881. Kristmann Jónsson, gullsmiður, fannst látinn við Draugatjörn árið 1881. Hann hafði verið í skemmtiferð á Hellisheiði í byrjun ágústmánaðar. Misvísandi framburður samferðafólks hans og sönnunargögn sem fuku út í veður og vind gera málið allt hið undarlegasta. Hvað gerðist við Draugatjörn — og hvers vegna var aldrei hægt að komast að endanlegri niðurstöðu? Hér má lesa umfjöllun Ólafs Valdimars Ómarssonar frá því í október 2023 Hér má skoða stafræna endurgerð af rannsóknarbók Jóns landsritara

