
Episode #10
S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim
Vörurnar frá GoodGood eru fáanlegar í 31 landi og um 10.000 verslunum, þar á meðal hjá risum á borð við Walmart, Whole Foods, Kroger og Sprouts, og innan skamms bætist Target í hópinn. Færri vita þó kannski að þetta alþjóðlega vörumerki er alíslenskt. Garðar Stefánsson, forstjóri og meðstofnandi Good Good, og Lóa Fatou, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, eru gestir þáttarins og fara með okkur yfir ótrúlega vegferð vörumerkisins, sem hófst við lítið eldhúsborð í Hafnarfirði fyrir rúmum áratug. Í þættinum heyrir þú meðal annars um: Hvernig fyrsta Good Good sultan varð til úr umfram lager af sætuefni- og endaði sem metsölusulta á Amazon Hvernig „lítil“ verslunarkeðja reyndist vera 250 með verslanir, og varð stórt stökk inn á Bandaríkjamarkað Hvernig Good Good rataði í The Drew Barrymore Show – og hvað gerðist við söluna í kjölfarið. Mistökin, tollavesenið og stöðugu vandamálin sem fylgja því að byggja fyrirtæki á alþjóðlegum markaði. Hvernig teymið hugsar um vöruþróun, fókus og hvaða vörur eigi að halda áfram með. Hvernig Good Good ætlar sér að sækja enn lengra á bandaríska markaðinn, en þau eru nú þegar í topp tíu í sultum og númer þrjú í súkkulaðismjöri. Hvers vegna Nutella hefur í raun skapað tækifæri fyrir Good Good. Hvaða bragðtegundir þau myndu aldrei framleiða. Og hvers vegna lausnamiðað hugarfar skiptir öllu þegar „það er alltaf eitthvað vesen" Þetta er skemmtilegt, fróðlegt og hvetjandi spjall og sjaldgæft tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin hjá íslensku fyrirtæki sem á í viðskiptum við nokkrar stærstu verslunarkeðjur heims, og heyra hvað þarf í raun til að byggja vörumerki fyrir heimsmarkað. -- Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skó r.is , Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

